Fastur vikulegur tími í golfi, ótímabundinn samningur. Dagsetningin sem valin er í dagatalinu er upphafsdagsetning samnings. Ef valinn er t.d. 22.september kl 10:30 þá er það fyrsti tíminn sem er bókaður, og sami tími er bókaður vikulega framvegis.Eftir að bókun er kláruð hér færðu samstundis sendan Taktikal samning sem nauðsynlegt er að undirrita rafrænt. Ef samningur er ekki undirritaður innan 30 mínútna er tíminn afbókaður og er þá aftur merktur laus til bókunar. Eftir að samningur hefur verið undirritaður færðu sendan QR kóða í tölvupósti sem þú notar til þess að komast inn um hlið í afgreiðslu Sporthússins í Reykjanesbæ.Vinsamlegast skráðu þína persónulegu kennitölu á notendaaðganginum sem þú notar til að ganga frá bókun, svo hægt sé að senda þér samninginn til rafrænnar undirritunar.Ef þú vilt skrá fyrirtæki sem greiðanda þá fyllir þú inn upplýsingar um fyrirtækið í Taktikal samningnum.Hægt er að velja um að fá senda kröfu í heimabanka mánaðarlega, eða beingreiðslu með skuldfærslu á bankareikning. Skilmálar binditímaÓtímabundinn samningur: Uppsögn tekur gildi um næstu mánaðarmót. Uppsagnarfrestur er samkvæmt skilmálum samnings einn mánuður. Það þýðir að ef samningi er sagt upp t.d. 17.september þá tekur uppsögnin gildi 1.október og viðkomandi greiðir þá fyrir októbermánuð, þar til uppsagnarfrestur endar 31.október.